Nú er auðvelt fyrir fróðleiksfúsa gesti á öllum aldri að kynna sér ferðir víkinganna um hinn norræna heim. Eiríksstaðir taka þátt í verkefni sem byggir á ferðum víkinganna og er þetta margmiðlunarleikur á netinu. Þarna eru kynntir mikilvægir staðir víkingatímans og byggir leikurinn á korti þar sem hægt er að heimsækja þaðan mismunandi norræna staði frá svipuðum tíma, fá um þá grundvallar upplýsingar og dýpka þannig þekkingu sína. Með því að bera saman viðburði frá ólíkum tímum og stöðum fæst skýrari mynd af samnorrænni sögu okkar. Leikurinn er á norsku, dönsku, sænsku og ensku. Á þessu ári mun svo koma inn íslensku hlutinn þar sem Eiríksstaður, Snorrastofa og Þingvellir eru þátttakendur. Þú munt ferðast frá Jelling í Danmörku til Borre í Noregs og Gamla Uppsala í Svíþjóð til Færeyja, Grænlands, Íslands og fleiri staða. Hrafnar Óðins þeir Huginn og Muninn verða leiðsögumenn þínir í ferðinni. Á hverjum stað eru spurningar sem þarf að svara. Saga staðanna er sögð í máli og myndum. Verkefnið er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni. |

Leikinn Smelltu
hér til að spila
www.raa.se/vikingaresan |